Í tilefni eins vikna afmælisins fór ég í göngutúr. Röllti niður á Grapevine að hitta Birki. Það var frábært að fara út að ganga, ég var bara hin hressasta, þannig að við ákváðum að fara bara á kaffihús. Fólk má alveg horfa, engin feimni í gangi. Við skelltum okkur á Hressó, þar sem ég pantaði mér heitt súkkulaði með rjóma. Umm…hvað hann var girnilegur. Mín bara þambaði allan bollan. “gegt, gott sko”, yndisleg tilfinning, rosa södd og sæl. En svo svona 2 mínútum seinna kom bakslagið. Mallinn tók kipp og fór að orga á mig.áááii….svo kom ógleðin…úff… Ég er ekki búin að borða annað en seyði, heimapressaða safa og næringadrykki í eina viku, svo skelli ég heilum súkkulaðibolla með fullt af rjóma ofan í mig. Ekki skrítið að mallinn fái sjokk. Ég er því bara komin upp í rúm aftur, með eyrnatappa, búin að taka ógleðislyfin og vona að þetta líði hjá sem fyrst.
Blogg sem ég skoða
Hitt og þetta
Kríli
Myndir
Myspacearar

No comments yet
Comments feed for this article