Hitti skurðlæknirinn í dag, hann var bara hinn sáttasti með gang mála. Hann skipti um teygjur en ákvað að hafa góminn/plötuna áfram í eina viku. Ég er bara nokkuð sátt við það, því gómurinn heldur neðri kjálkanum á réttum stað, sem er kostur. Doksi sagði að þetta bara svona vel af því að ég væri svona jákvæð :) Gaman að heyra.

Dagurinn í dag og kvöldið, reyndar líka, hefur farið í að pikka inn gögn í SPSS. Rosa stuð. Ég verð reyndar að segja að ég er nokkuð spennt yfir því að sjá gögnin mín vera taka á sig heildarmynd. Gaman að sjá hvernig ástandið í grunnskólunum er.