Prófinu lokið
október 20th, 2010 § Rita ummæli
Jæja, prófinu í verkefnastjórnun lokið. Tökum alvöru próftörn á þetta og sváfum allt of lítið, áttum fullt af góðgæti og annað sem maður gerir fyrir próf. Eftir prófið verðlaunuðum við okkur með ljómandi góðu sushi og prinsessutertu í bakaríinu. Stundum verður maður að leyfa sér. Ég held að okkur hafi báðum gengið allt í lagi í prófinu og ættum að geta stjórnað verkefnum vandræðalaust.