Smá myndataka
október 31st, 2010 § Rita ummæli
This slideshow requires JavaScript.
Lóa vinkona mín er að kenna yoga og vantaði nokkrar myndir fyrir heimasíðuna sína. Við kíktum því út í fallegu haustveðri og tókum nokkrar myndir. Við völdum ekki alveg réttan tíma dags. Sólin var hátt á lofti sem gerði myndatökuna aðeins erfiðari. Ég náði nokkrum myndum sem ég var sátt við. Ég sá hins vegar fyrir mér að útkoman yrði allt öðruvísi, en þetta var skemmtilegt og góð æfing. Lóa var líka frábært módel og lét ekki kuldann á sig fá. Slóðin á síðuna hennar er yogalund.com
Ef þið eruð í Lundi eða nágrenni mæli ég eindregið með námskeiðunum hennar.