Döðlubrauð með hnetum og höfrum

október 31st, 2010 § 1 ummæli

Við Katrín prófuðum að skálda uppskrift af döðlubrauði. Við vorum með nokkrar uppskriftir til hliðsjónar, en skiptum svo bara út hráefnunum. Áttum ferlega flottar ferskar döðlur sem við notuðum í þetta. Í brauðið settum við:

5 dl döðlur
3 dl sjóðandi vatn
3 dl gróft spelt
2 dl tröllahafrar
1 dl bókhveiti
1 dl hakkaðar valhnetur/möndlur
1 dl muskvado/púðursykur
2 stk egg
50 gr kókosfeiti/smjör
1 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
1 tsk negull
1 tsk kanill

Tók steinana úr döðlunum og lét þær svo liggja í sjóðandi vatna. Næst notaði ég töfrasprotann og maukaði  döðlurnar, hnetur og smá af vatninu . Svo skellti ég öllu í heimilsihjálpina og hrærði með K-stykkinu þar til að það var komin flott áferð á deigið. Svona deig á að vera blautt og hálf fljótandi, ekki eins og venjuleg brauðdeig.

Bakaði í 50-60 min (þar til að þið getið stúngið prjón í án þess að það festist við hann) á 160-180°

§ One Response to Döðlubrauð með hnetum og höfrum

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

What’s this?

You are currently reading Döðlubrauð með hnetum og höfrum at Úlfrún.

meta

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.