Ert þú í ástandi til að tjá þig á facebook?
nóvember 3rd, 2010 § Rita ummæli
Rakst á grein í Metro í morgun um vefsíðuna Fyllefilter.se. Síðan býður upp á próf sem maður getur tekið til að sjá hvort að maður sé í ástandi til að fara tjá sig á netinu. Þetta er fullkomið fyrir fólk eins og mig sem á það til að tjá sig aðeins of mikið á facebook og Twitter eftir að hafa fengið sér í glas. Sniðug hugmynd, en held að það þurfi að þróa hana frekar, veiti ekki hversu vel hún virkar. Ég prófaði að taka prófið 5 sinnum og féll 4 sinnum. Allsgáð! Jæks, eins gott að facebook læsist ekki ef maður fellur á prófinu. Ég vil reyndar kenna lélegri mús um slæmt gengi.
Þið getið spreytt ykkur á prófinu á Fyllefilter.se.
